Просмотр отдельного сообщения
Старый 02.12.2023, 22:26   #214249
Lady Aragorn
странствующий рыцарь
 
Аватар для Lady Aragorn
 
Регистрация: 23.05.2014
Адрес: Мой мир всегда со мной
Сообщений: 28,505
Лайки: 26,379
Цитата:
Сообщение от Annie Jane Посмотреть сообщение
Какие замечательные фото!

А ссылки не хотят открываться(

[IMG]https://i.ibb.co/n7n47nt/dn.gif[/IMG]
Хмм... У меня всё нормально прошло, через мозиллу. А попробуй или другой браузер, или через впн?

---------- Сообщение добавлено в 20:26 ---------- Предыдущее сообщение было в 20:23 ----------

На всякий случай, если не удастся вломиться - оригинал текста. Вполне переводится гуглом или Яндексом (второй, кажется, лучше справился местами):
Leikari skrifar spennutrylli
Leikarinn Richard Armitage var staddur á Íslandi nýlega og ræddi um feril sinn og nýja spennubók. mbl.is/Ásdís

Sunnudagur

Ásdís Ásgeirsdóttir

Stór­leik­ar­inn, og nú rit­höf­und­ur­inn, Rich­ard Armita­ge tek­ur á móti blaðamanni með breiðu brosi og stóru faðmlagi. Armita­ge er lík­lega þekkt­ast­ur fyr­ir hlut­verk sitt sem Thor­in Oa­kens­hield í þríleikn­um Hobbit­an­um, sem byggður er á bók­um J.R.R. Tolkien. Marg­ir kann­ast líka við hann úr bresku njósna­þátt­un­um Spooks, kvik­mynd­inni Oce­an’s Eig­ht eða ný­lega ástarsk­an­dalsþætt­in­um Obsessi­on. En nú hef­ur leik­ar­inn reynt fyr­ir sér á bók­mennta­sviðinu því út er kom­inn spennu­tryll­ir­inn Geneva. Ein­mitt þess vegna var breska leik­ar­an­um boðið til Íslands á bók­mennta­hátíðina Ice­land Noir sem fór fram á dög­un­um.

Geneva fjall­ar um nó­bels­verðlauna­hafa í vís­ind­um, Söruh Collier, sem fær alzheimers­sjúk­dóms­grein­ingu á ráðstefnu í Genf þar sem hún er stödd að halda er­indi. Þar með er ekki öll sag­an sögð því af stað fer at­b­urðarás sem held­ur les­and­an­um í spennu þar til yfir lýk­ur.
Góður leik­ari þarf hug­mynda­flug

Armita­ge er á Íslandi í fyrsta sinn og er yfir sig hrif­inn.

„Ég hef bara verið hér í nokkra daga og lang­ar mikið að koma aft­ur að sum­ar­lagi. Við fór­um á Gull­foss og veðrið hef­ur verið svo fal­legt; app­el­sínu­gul­ur him­inn og ekk­ert sem trufl­ar út­sýnið. Við reynd­um að leita að norður­ljós­un­um en sáum þau ekki, en bara að kom­ast út úr borg­inni og vera í al­gjöru myrkri var mjög sér­stakt,“ seg­ir Armita­ge sem hef­ur ára­tugareynslu af leik og seg­ir það klár­lega hafa hjálpað sér við skrift­irn­ar á Geneva.

„Á lífs­leiðinni hafa orðið á vegi mín­um mörg snilld­ar­hand­rit og ég hef hitt marga snjalla höf­unda sviðsverka. Maður pikk­ar upp eitt og annað sem hægt er að nota í skrift­ir. Ég hef lært bæði af því góða og slæma,“ seg­ir Armita­ge og nefn­ir að sér þyki mest spenn­andi að skrifa sam­ræðurn­ar og að setja sig inn í sen­urn­ar.

Þegar þú skap­ar og þróar per­són­ur, not­ar þú sjálf­an þig eða fólk úr eig­in lífi sem fyr­ir­mynd­ir?

„Þegar ég er að leika sjálf­ur þá reyni ég að halda minni per­sónu langt frá þeim sem ég leik. Þar eru kannski 2% af sjálf­um mér og 98% af hinum skapaða karakt­er. Í bók­inni er kannski aðeins meira frá sjálf­um mér. En aðalleik­kon­an, Sarah Collier, er byggð á Söruh Gil­bert sem hannaði AstraZeneca-bólu­efnið. Á tím­um kór­ónu­veirunn­ar horfði ég á mikið af heim­ild­ar­mynd­efni um hana og fannst hún vera trú­verðug mann­eskja sem hægt væri að taka mark á; mitt í allri upp­lýs­inga­óreiðunni sem þá ríkti. Ég notaði því hana sem fyr­ir­mynd að aðal­per­són­unni,“ seg­ir hann.

„Það stend­ur til að búa til sex þátta seríu eft­ir bók­inni. Ég verð að leika í henni; það var hluti af samn­ingi mín­um hjá Sony. Ég mun leika eitt aðal­hlut­verkið.“
Að leika í Hobitt­an­um væri nóg

Ef þú horf­ir til baka yfir fer­il­inn, hvaða hlut­verk stend­ur upp úr?

„Þau eru tvö; eitt var í Hobbit­an­um þar sem ég lék Thor­in Oa­kens­hield. Það var eitt stórt æv­in­týri að fara hinum meg­in hnatt­ar­ins og dvelja þar um langa hríð. Þar fékk ég að leika hlut­verk per­sónu úr bók sem hafði verið stór hluti af nær­ingu ímynd­un­ar­afls míns þegar ég var tíu ára gam­all. Að fá svo að fara sem fer­tug­ur maður og leika þetta hlut­verk var eins og að loka hringn­um. Mynd­irn­ar fengu svo frá­bær­ar viðtök­ur og öll sú reynsla var dýr­mæt. Ef ég myndi aldrei leika annað hlut­verk á æv­inni, yrði þetta nóg.“
Armitage var hrifinn af Íslandi og ætlar nú að lesa …
Armita­ge var hrif­inn af Íslandi og ætl­ar nú að lesa bók­ina Reykja­vík. mbl.is/Á​sdís

Armita­ge hef­ur ferðast vítt og breitt um heim­inn vegna vinnu sinn­ar sem kvik­mynda­leik­ari.

„Það er ein besta gjöf­in sem ég fæ sem leik­ari, að fá að vinna er­lend­is. Ég er ekk­ert góður í því að vera túristi en mér finnst svo skemmti­legt að fá að vinna er­lend­is því þá fæ ég að kynn­ast heima­fólki og maður kemst að því hvernig staður­inn er í raun,“ seg­ir hann og seg­ist strax finna sig vel á Íslandi þó hann sé í sinni fyrstu heim­sókn. Hann seg­ist nú hlakka til að lesa Reykja­vík eft­ir Ragn­ar Jónas­son og Katrínu Jak­obs­dótt­ur, ekki síst vegna þess að nú hef­ur hann verið hér.

„Mér líður eins og ég sé í bíó­mynd hér; kannski sé þetta í ein­hverj­um rós­rauðum bjarma,“ seg­ir hann og bros­ir.

„Svo er hér svo mik­il nátt­úra með öll­um þess­um jarðhrær­ing­um. Það er frek­ar fyndið hvernig um­heim­ur­inn flyt­ur frétt­ir af því að Ísland sé að springa í loft upp og svo kem­ur maður hingað og heima­menn eru ró­leg­ir, enda er þetta hluti af ykk­ar lífs­stíl.“

Ítar­legt viðtal er við Armita­ge í Sunnu­dags­blaði Morg­un­blaðsins um helg­ina.
 
Это первая ссылка. Вторая, я так поняла - то же самое, только в укороченном виде.
__________________

- В наших силах решать только, что делать со временем, которое нам отпущено (с).
- I'm sorry sir, I can't answer that question (с).
РА-биография - 1, 2, Мои рисунки,клипы
и фики о РА

Последний раз редактировалось Lady Aragorn; 02.12.2023 в 23:32.
Lady Aragorn вне форума   Ответить с цитированием
Lady Aragorn получил(а) за это сообщение 4 лайков от: