Цитата:
Сообщение от Britu
ЛедиА, а фотографии оттуда? Там случайно нет фамилии фотографа? Это же целая фотосессия 
|
Да,
Бриту, фото из статьи, но нигде не указано, кто снимал, только имя репортёра, - скорее всего, она и снимала: Ásdís Ásgeirsdóttir / Асдис Асгейрсдоттир.
Вот скан:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2..._spennutrylli/
По второй ссылке - вот это:
https://www.mbl.is/mogginn/bladid/in...ein_id=1850055
[img]
Текст:
Sunnudagsblað
„Svo kemur alltaf annað hlutverk“
Leikarinn Richard Armitage var staddur á landinu nýlega á Iceland Noir, en hann hefur nú skrifað spennutrylli. Armitage er með sitthvað í deiglunni og alltaf koma til hans ný hlutverk þó hann efist stundum um það.
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
Laugardagur, 2. desember 2023
Ég sest niður og klára kaflana ef ég þarf þótt það sé miðnótt. Ég er með mikinn sjálfsaga. Það lærði ég strax sem dansari.
„Mér líður eins og ég sé í bíómynd hér; kannski sé þetta í einhverjum rósrauðum bjarma,“ segir Richard Armitage.
„Mér líður eins og ég sé í bíómynd hér; kannski sé þetta í einhverjum rósrauðum bjarma,“ segir Richard Armitage. — Morgunblaðið/Ásdís
Stórleikarinn, og nú rithöfundurinn, Richard Armitage tekur á móti blaðamanni með breiðu brosi og stóru faðmlagi. Armitage er líklega þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Thorin Oakenshield í þríleiknum Hobbitanum, sem byggður er á bókum J.R.R. Tolkien. Margir kannast líka við hann úr bresku njósnaþáttunum Spooks, kvikmyndinni Ocean’s Eight eða nýlega ástarskandalsþættinum Obsession. En nú hefur leikarinn reynt fyrir sér á bókmenntasviðinu því út er kominn spennutryllirinn Geneva. Einmitt þess vegna var breska leikaranum boðið til Íslands á bókmenntahátíðina Iceland Noir sem fór fram á dögunum.